Viðskiptaráð leggur til sölu á kirkjum

Kirkjuhvammskirkja við Hvammstanga. Mynd: KSE
Kirkjuhvammskirkja við Hvammstanga. Mynd: KSE

Viðskiptaráð Íslands hefur lagt til að ríkissjóður losi um eignarhald sitt að þeim 22 kirkjum sem eru í ríkiseigu. Þeirra á meðal eru Barðskirkja í Fljótum, Grafarkirkja á Höfðaströnd, Hóladómkirkja, Auðkúlukirkja í Húnavatnshreppi og Kirkjuhvammskirkja við Hvammstanga.

Er tillaga þess efnis hluti af úttekt sem Viðskiptaráð gerði til hagræðingar í ríkisrekstri. Þar er gerð tillaga aum að ríkissjóður selji um 200 þúsund fermetra af því húsnæði sem er í eigu ríkisins en í heildina nemur fermetrafjöldi fasteigna þess er um 880 þúsundum.

Ekki er lagt til að kirkjurnar séu seldar almennri sölu heldur að þær verði færðar í eigu þjóðkirkjunnar samkvæmt samkomulagi þar um, eftir því sem haft er eftir Birni B. Björnssyni, hagfræðingi VÍ í Morgunblaðinu. Hugsunin sé sú að kirkjan reki sínar kirkjur sjálf, líkt og raunin er á höfuðborgarsvæðinu.

Umræddar kirkjur eru ólíkrar gerðar og standa vítt og breitt um landið. Elst er Grafarkirkja sem að stofninum til er frá árinu 1680 og næstelst er Hóladómkirkja sem byggð var á árunum 1757 til 1763 og er meðal elstu steinhúsa landsins. 

Fleiri fréttir