Viktoría Eik gerði góða ferð til Hollands
Viktoría Eik Elvarsdóttir frá Syðra Skörðugili í Skagafirði, tók þátt í FEIF Youth Cup hestaíþróttamótinu í Hollandi á dögunum en þar er íslenski hesturinn í hávegum hafður. Viktoría Eik sótti um hjá Æskulýðsnefnd LH og var valin úr hópi umsækjenda til að keppa á mótinu.
Viktoría endað í þriðja sæti í fimmgangi, fjórða sæti í 100m skeiði og í sjötta sæti í gæðingaskeiði. Aðspurð hvort hún væri sátt við árangurinn segist hún virkilega sátt, sérstaklega í ljósi þess að hún fékk hestinn sem hún reið, lánaðan í Hollandi og þekkti hann ekki mikið fyrir keppnina.
Blaðamaður Feykis spurði Viktoríu Eik um framtíðina í hestaíþróttinni. Viktoría Eik sagðist ekki vera viss um hvert hún stefndi en „Ég hugsa að ég muni klára skólann og fara svo eitthvað til útlanda að vinna við hesta og kynnast nýjum vinnubrögðum. Eftir það mun ég taka ákvörðun hvort ég ætli að sækja um Hólaskóla eða ekki.” Ennfremur segir hún „Ég mun ábyggilega alltaf vera í hestum en ég veit ekki hvort ég hafi það sem mitt aðalstarf í framtíðinni.“
Það verður gaman að fylgjast með þessari ungu og efnilegu stelpu í framtíðinni.