Vinadagurinn í dag
Vinadagurinn í Skagafirði er haldinn í dag í íþróttahúsinu á Sauðárkróki og er þetta í fimmta sinn sem hann er haldinn. Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að almenn ánægja sé meðal nemenda og starfsfólks skólanna með daginn.
Allir nemendur grunnskólanna í Skagafirði hittast í íþróttahúsinu kl 10 ásamt skólahópum leikskólanna og fyrstu árs nemum FNV og skemmta sér saman eins og sannir vinir eiga að gera. Aldurshópar verða með samveru milli kl 10 og 12:30 og síðan er sameiginleg dagskrá kl 12:30-13. Dagskráin samanstendur af samveru, söng, leik og dansi.
Allir Skagfirðingar eru boðnir velkomnir í íþróttahúsið og taka þátt í sameiginlegu dagskránni sem hefst kl 12:30.