Vísindi og grautur á fimmtudaginn

Fyrirlestur verður í fyrirlestraröðinni Vísindi og grautur á vegum ferðamáladeildar Háskólans á Hólum fimmtudaginn 7. okt. milli 9-10. Fyrirlesari er Robert O. Nilsson, doktorsnemi í Landfræði hjá Umeå háskóla í Svíþjóð. Fyrirlesturinn nefnist „Artification through naming and language use“.

Hugtakið „heimskautasvæði“ er sífellt meira notað af ferðaþjónustuaðilum til markaðssetningar. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig þessi breytta málnotkun umhverfir sýninni á hvaða svæði teljast heimskautasvæði og hvernig hún getur haft áhrif á samfélagsgerð þessara svæða. Fyrirlesturinn verður haldinn í hátíðarsal háskólans og er opinn öllum.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir