Vorvindar glaðir og sr. Dalla með kyrrðarstund í Miklabæjarkirkju

Sönghópurinn Vorvindar glaðir ásamt sr. Döllu Þórðardóttur standa fyrir kyrrðarstund í Miklabæjarkirkju í kvöld klukkan 20:30. Eins og reglur kveða á um verður gestum ekki heimill aðgangur en þess í stað verður hægt að njóta stundarinnar um streymi beint frá kirkjunni.

Sönghópurinn Vorvindar glaðir samanstendur af nokkrum vinum sem koma saman og syngja sér til upplyftingar og ánægju og hafa þeir sungið við nokkur kirkjuleg tilefni og víðar. Í fréttatilkynningu frá hópnum segir að hópurinn, ásamt sr. Döllu, hafi haldið kyrrðarstund í Miklabæjarkirkju á þessum tíma í fyrra og til hafi staðið að endurtaka leikinn í ár. En allt er breytingum háð þessa dagana og í stað þess að koma í kirkjuna gefst fólki kostur á að fylgjast með streymi á Facebooksíðu hópsins, https://fb.me/e/1NYMDa5lw

Fleiri fréttir