180 börn á hrekkjavökuballi á Blönduósi
Það var heldur betur líf og fjör í Félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi þegar 180 börn á aldrinum 10–12 ára af öllu Norðurlandi vestra komu saman á hrekkjavökuballi. Félagsheimilið var skreytt í anda hrekkjavökunnar og mátti sjá alls konar skemmtilegar og skrautlegar fígúrur á svæðinu.
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hjá Húnabyggð tjáði Feyki að góð stemning hefði verið á ballinu og greinilegt að krakkarnir hafi notið kvöldsins. Ballið var jafnframt lokaviðburður barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls sem staðið hefur yfir á Norðurlandi vestra síðastliðnar tvær vikur.
„Það væri gaman að sjá þennan viðburð festa sig í sessi sem árlegan viðburð þar sem börn af öllu Norðurlandi vestra fá tækifæri til að hittast og skemmta sér saman,“ sagði Kristín sem lánaði Feyki að auki nokkrar myndir frá ballinu.



