757 milljónir í jarðræktarstyrki, landgreiðslur og tjónabætur vegna tjóns af völdum álfta og gæsa

Á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins kemur fram að afgreiddir hafa verið jarðræktarstyrkir, landgreiðslur og tjónabætur vegna tjóns af völdum álfta og gæsa á ræktunarlandi bænda vegna ársins 2021 og voru samþykktar 1.518 umsóknir þetta árið. Styrkir vegna jarðræktar nema alls 379.624.751 kr. skv. fjárlögum ársins 2021 og 377.624.620 í landgreiðslustyrki, sem gera alls 757.249.371 kr.

Landgreiðslur voru veittir vegna 79.869 hektara (ha) 35.860 spildna og er einingaverð landgreiðslna er 4.718 kr. pr. ha. Jarðræktarstyrkir voru veittir vegna 10.903 ha sem skiptust niður á 4.634 ræktunarspildur en þar er einingaverð jarðræktarstuðnings 34.687 kr./ha.

„Útreikningur um landstærðir og ræktun byggjast á upplýsingum úr jarðræktarskýrsluhaldi í forritinu Jörð.is, sem svo aftur byggir á landupplýsingagrunni túnkorta. Úttektarmenn atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sjá um úttektir í samræmi við reglugerð um almennan stuðning í landbúnaði nr. 430/2021. Framlög vegna landgreiðslna taka mið af heildarfjölda hektara (ha.) sem sótt er um og deilast jafnt út á þá ha. sem sótt er um stuðning fyrir. Fullur jarðræktarstyrkur er veittur fyrir ræktun upp að 30 ha. en hlutfallast skv. töflu í 7. gr. reglugerðar nr. 430/2021,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Fleiri fréttir