AFLATÖLUR | Dagana 4. feb.–10. feb. á Norðurlandi vestra

Frá Skagastrandarhöfn. Mynd tekin af Facebook-síðu Skagastrandarhafnar.
Frá Skagastrandarhöfn. Mynd tekin af Facebook-síðu Skagastrandarhafnar.

Á Skagaströnd lönduðu sex bátar og var heildaraflinn tæp 43 tonn í átta löndunum. Aflahæstur var línubáturinn Tryggvi Eðvarðs SH 2 með rúm tólf tonn í einni löndun og var uppistaða aflans þorskur. Þá segir á Facebook-síðu Skagastrandarhafnar að þorskurinn hafi verið vel vænn og útbelgdur.

Á Króknum lönduðu þrír togarar rúmum 405 tonnum í þrem löndunum og voru það Drangey, Málmey og Silver Bird sem komu að landi sl. viku. Á fisk.is segir að Málmey hafi verið við veiðar á Rifsbanka og uppistaðan þorskur og ýsa. Drangey var við veiðar á Sléttugrunni og Rifsbanka og uppistaða aflans þorskur.

Á Hvammstanga lönduðu svo tveir bátar, Sjöfn SH 4 og Bára SH 27, alls 8.360 kg í fjórum löndunum en enginn landaði á Hofsósi og var því heildaraflinn á Norðurlandi vestra 456.710 kg í 15 löndunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir