Áfram rauðar tölur í kortunum

Spáin heldur áfram að vera líkari vori en vikunni fyrir upphaf Þorra en í dag er gert ráð fyrir 0 -4 gráðu hita en á morgun verður hitinn 2 - 7 gráður.

Annars gerir spáin ráð fyrir suðvestan  5-13 m/s og stöku skúrum, en hægari og þurrt í kvöld. Austan 5-10 og rigning seint í nótt, en suðlægari og þurrt síðdegis.

Vegir eru víðast hvar greiðfærir en þó er hálka á Öxnadalsheiði og á Vatnsskarði og er sama staða á Holtavörðuheiði.

Fleiri fréttir