Auglýst eftir styrkumsóknum í Húnasjóð

Húnaþing vestra auglýsir á heimasíðu sinni eftir umsóknum um styrki úr Húnasjóði en en sjóðurinn hefur þann tilgang að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Sjóðinn stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. 

Húnaþing vestra leggur sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni og skal árlegu framlagi sveitarfélagsins ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls úthlutað í styrki á ári hverju.

Skriflegar umsóknir um styrk vegna ársins 2020 ásamt lýsingu á námi skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 10. júlí n.k.

Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða heimasíðu þess, hunathing.is, undir liðnum eyðublöð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir