Bjarni Jónsson endurkjörinn formaður SSNV
Framhaldsársfundur SSNV, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem frestað var frá fyrra mánuði fór fram í dag á Skagaströnd. Þar var kosin ný stjórn og varastjórn og hlutfalli kynjanna haldið réttum samkvæmt reglum en ekki tókst að mynda stjórn á fyrri fundi eftir að breytingatillaga kom fram um kynjaskiptingu.
Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri samtakanna sagði í samtali við Feyki að allt hefði farið prúðmannlega fram og allt á góðu nótunum. Breytingar hefðu verið gerðar á samþykktum þar sem fellt var úr gildi að formaður skyldi rótera á milli svæða.
Nýja stjórn skipa þau:
- Bjarni Jónsson Skagafirði
- Þóra Sverrisdóttir Húnavatnshreppi
- Ágúst Þór Bragason Blönduósi
- Leó Örn Þorleifsson Húnaþingi vestra
- Hanna Þrúður Þórðardóttir Skagafirði
Varastjórn:
- Stefán Vagn Stefánsson Skagafirði
- Hrefna Gerður Björnsdóttir Skagafirði
- Elín R. Líndal Húnaþingi vestra
- Péturína Jakobsdóttir Skagaströnd
- Vignir Sveinsson Skagabyggð