Elín Jóna Rósinberg nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Húnaþings vestra
Elín Jóna Rósinberg hefur verið ráðin í starf sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Húnaþings vestra. Í tilkynningu á vef Húnaþings vestra kemur fram að Elín Jóna sé með Cand.oceon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hún leggi stund á MPA nám í opinberri stjórnsýslu við skólann.
„Undanfarin 14 ár hefur Elín Jóna starfað sem fjármálastjóri og staðgengill forstöðumanns Fæðingarorlofssjóðs auk þess sem hún hefur borið ábyrgð á verkefnum fyrir fjármálasvið Vinnumálastofnunar, m.a. fjárhagsuppgjör erlendra verkefna og vinnu við innra eftirlit stofnunarinnar. Elín Jóna sat í sveitarstjórn Húnaþings vestra í átta ár, þar af þrjú sem formaður byggðarráðs og öðlaðist þar mikla innsýn inn í starfsemi og rekstur sveitarfélagsins. Þá starfaði Elín einnig sem deildarstjóri bókhaldsdeildar Forsvars ehf. um sex ára skeið,“ segir í tilkynningunni. Kemur Elín Jóna alfarið til starfa á haustdögum.
/SHV
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.