Emma Katrín mætt til starfa á Feyki
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
21.05.2026
kl. 11.03
Sumarafleysingadama hóf störf á Feyki í morgun og byrjar á því að fylla skarð Hinriks Más blaðamanns sem fer mikinn framan af sumri við að dæma hross hér heima og erlendis. Emma er 18 ára Króksari, dóttir Freyju Emils og Helga Jóhannesona badmintonkappa, en sjálf er Emma á kafi í íþróttum og er ein sterkasta badmintonkona landsins og að auki á fullu í körfunni með Stólastúlkum.
