Fjölbreytt fjarnám í boði við FNV
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fjarnám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra en allir geta stundað nám við FNV, óháð búsetu.
Umsóknareyðublað er á heimasíðu skólans http://www.fnv.is/ undir heitinu umsókn fyrir fjarnema. Einnig er hægt að skrá sig á netfangið sirry@fnv.is
Kennsla hefst 1. september 2009 og fer hún fram í kennsluumhverfi á netinu sem nefnist Moodle.
Áfangar í boði, gjaldskrá og aðrar upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans.