Flestir veitingastaðir á Norðurlandi vestra með hlutina í lagi

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur farið í eftirlitsferðir á þá staði hvar seldar eru veitingar í umdæminu og eftir því sem kemur fram á Facebook-síðu embættisins hefur verið kannað með sóttvarnir og aðgengi gesta að þeim og hvort að tveggja metra reglan sé virt. Einnig var kannað hvort farið væri eftir reglum að ekki sé minna en tveir metrar á milli borða.

„Í flestum tilfellum voru þessir hlutir í lagi en í öðrum var gert að laga þessa hluti hið snarasta. Lögreglan mun halda áfram þessu eftirliti á meðan að á þessu ástandi stendur.

Þá viljum við minna fólk á handþvott og sótthreinsun eins og enginn sé morgundagurinn. Síðast en ekki síst þá minnum við fólk á að virða 2 metra regluna nú sem aldrei fyrr! Munum að styðja hvort annað á meðan þetta ástand stendur yfir, verum jákvæð og sýnum hvort öðru skilning,“ segir í færslu lögreglunnar sem í lokin minnir á að við erum öll almannavarnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir