FNV mætir MA í fyrstu umferð Gettu betur

Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn sem keppa fyrir hönd FNV.
Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn sem keppa fyrir hönd FNV.

Nú er komið í ljós á móti hverju FNV mætir í fyrstu umferð Gettu betur sem fer fram á morgun, miðvikudaginn 10. janúar, og er það enginn annar en  Menntaskólinn á Akureyri. Lið FNV skipa þau Alexander Victor Jóhannesson, Steinunn Daníella Jóhannesdóttir og Atli Steinn Stefánsson.

Hefð hefur skapast hjá FNV síðustu ár að keppnisliðið mætir úrvalsliði starfmanna í upphitunarkeppni og verður sú rimma einnig háð á morgun, miðvikudaginn 10. janúar. Lið starfsfólks FNV skipa þær Lee Ann, Sunna og Guðbjörg Einars og fer sú keppni fram kl. 11 í stofu 302. 

Boðið verður upp á rútuferð til Akureyrar frá bóknámshúsi FNV kl. 16.30 fyrir þá nemendur sem hafa áhuga á að horfa á keppnina en einnig verður streymt frá viðureigninni frá heimasíðu RÚV og hvetjum við alla að fylgjast með. 

Áfram FNV!!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir