FNV úr leik í Gettu betur eftir hörku viðureign gegn MA

Lið FNV. Mynd aðsend
Lið FNV. Mynd aðsend

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Menntaskólinn á Akureyri mættust í gærkvöldi í fyrstu umferð Gettu betur. Þegar skólarnir drógust saman varð ljóst að hljóðver RÚV á Akureyri, þar sem liðin hafa keppt í útvarpshluta keppninnar, væri of lítið og var því brugðið á það ráð að halda keppnina í Kvosinni sem er samkomusalur Menntaskólans á Akureyri.

Gátu því áhorfendur fylgst með keppninni og fóru rúmlega 60 nemendur frá FNV til Akureyrar til þess að styðja sitt lið. Myndaðist góð stemmning þar sem stuðningsveitir beggja skóla létu vel í sér heyra.

Útvarpsviðureignir Gettu betur eru þannig skipulagðar að fyrst eru hraðaspurningar og síðan 12 bjölluspurningar. Liði MA gekk betur í hraðaspurningunum og leiddu að þeim loknum 10-5. Lið FNV tóku við sér í bjölluspurningunum og úr varð hörku viðureign þar sem MA stóð uppi sem sigurvegari 18-15.

Lið FNV skipuðu þau Alexander Victor Jóhannesson, Atli Steinn Stefánsson og Steinunn Daníella Jóhannesdóttir. Alexander og Steinunn eru systkini og koma frá bænum Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu og Atli Steinn er alinn upp á Hólaveginum á Sauðárkróki og er sonur Unu A. Sigurðardóttur og Stefáns Guðmundssonar.

Getur lið FNV gengið stolt frá borði enda æft vel í vetur en auk þeirra þriggja voru þau Daníel Smári Sveinsson, Auður Ásta Þorsteinsdóttir og Matthías Sigurðsson í æfingahóp Gettu betur. /Ágúst Ingi Ágústsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir