Forðist matarsýkingar um jólin
Háannatíminn í eldhúsum margra landsmanna er nú framundan og er þá að ýmsu að hyggja. Matvælastofnun hvetur landsmenn til að huga vel að hreinlæti, og tileinka sér rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli gleðinni á hátíðinni sem framundan er.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla sé afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.
„Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.
Þá er bent á að nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og því sé mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum.
Þar sem bakteríur fjölga sér afar hratt við kjöraðstæður er mjög mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við rétt hitastig svo komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería. Því er áríðandi að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg er á borðum við stofuhita. Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C. Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C) takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.
Atriði sem hafa ber í huga:
- Hrátt kjöt og safi úr því skal ekki komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
- Þvoum ávexti og grænmeti til að varna því að bakteríur af því berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
- Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti
- Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun eða notum sérstök skurðarbretti fyrir kjöt, grænmeti og tilbúin matvæli
- Skipuleggjum ískápinn vel og höldum honum hreinum til að varna því að krossmengun verði þar
- Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.