Gærurnar styrktu Húna
Hinar einu sönnu Gærur úr Húnaþingi komu færandi hendi fyrr í vikunni og afhentu Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga styrk að upphæð eitt hundraðþúsund krónur til unglingastarfs björgunarsveitarinnar.
Björgunarsveitin færði Gærunum sínar bestu þakkir fyrir stuðningin en hann á eftir að nýtast til góðra mála eins og segir á hemasíðu sveitarinnar.
Gærurnar sem er hópur kvenna í Húnaþingi hefur verið m.a. með nytjamarkað í Gærukjallaranum á Hvammstanga og rennur ágóðinn til góðra mála í heimahéraði.