Gul viðvörun í boði Veðurstofunnar

Svona er reiknað með að veðrið verði um kl. 8 í fyrramálið (föstudagsmorgun). SKJÁSKOT AF ELDRI.VEDUR.IS
Svona er reiknað með að veðrið verði um kl. 8 í fyrramálið (föstudagsmorgun). SKJÁSKOT AF ELDRI.VEDUR.IS

Veðurstofan hefur skellt gulri veðurviðvörun á Norðurland vestra og Strandir og reyndar allt landið. Viðvörunin tekur gildi nú um kl. 17 og fellur úr gildi um hádegi á morgun. „Suðaustan og austan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s við fjöll. Snýst í sunnanátt aðfaranótt föstudags. Varasamt ferðaveður,“ segir í spánni.

Það lægir nokkuð um hádegi á morgun, föstudag, en hvessir að sunnan undir kvöld en þó ekkio jafn duglega og reiknað er með í kvöld. Það er útlit fyrir stillt og ágætt veður á laugardag og svo skemmtilega vill til að það má gera ráð fyrir lítils háttar snjókomu svona rétt á meðan ljós verða tendruð á jólatrjám á Norðurlandi vestra.

Eftir hlýindin undanfarna daga eru allir vegir á svæðinu greiðfærir – nema hálendisvegir að sjálfsögðu.

Fleiri fréttir