Uppbygging hraðhleðslustöðvar á Blönduósi

Mynd af n1.is
Mynd af n1.is

Í fréttatilkynningu frá Teslu og N1 segir að þessi tvö fyrirtæki hafi undirritað rammasamning sem felur í sér áform um uppbyggingu hraðhleðslustöðva við þjónustustöðvar N1 víðs vegar um landið. Markmið N1 með samningsgerðinni er að auka verulega þjónustu við notendur rafbíla og byggja upp víðfeðmt net hraðhleðslustöðva á næstu tveimur árum samhliða uppbyggingu Tesla.

Uppbygging Tesla verður við eftirfarandi þjónustustöðvar N1: Borgarnesi, Blönduósi, Egilsstöðum, Vík, Ísafirði, Hringbraut, Kirkjubæjarklaustur, Hveragerði, Keflavík og Ártúnshöfða samhliða fjölgun hleðslustæða þar sem Tesla er nú þegar við Staðarskála og í Fossvogi. Þá mun N1 setja upp níu nýja hraðhleðslugarða innan tveggja ára. Samtals eru því áform um nítján nýja hraðhleðslugarða og mun hraðhleðslustæðum við þjónustustöðvar N1 fjölga um meira en 150 á þessu tímabili.

Áformin næstu tvö árin eru fyrsti áfanginn í vegferð N1 tilað stórbæta aðgengi að hraðhleðslu fyrir eigendur rafbíla um land allt. Lögð verður áhersla á uppbyggingu við fjölfarnar leiðir utan höfuðborgarsvæðisins en einnig er horft til svæða utan alfararleiðar til að þjónusta dreifðari byggðir landsins.

Með fyrirhugaðri uppbyggingu vill N1 leitast við að tryggja aðgengi allra að öruggri rafhleðslu, óháð bíltegund, greiðsluleið og álagstoppum og framfylgja þeirri stefnu félagsins að allir eigi að geta hlaðið bílinn sinn með vissu um stuttan biðtíma, örugga virkni og einfalt notendaviðmót um land allt. Hraðhleðslustöðvar Tesla verða opnar öllum rafmagnsbílum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir