Hrútasýning í Hrútafirði - Besti hrútur sýningarinnar holdfylltur frá nösum til dindils

Efstu hrútar sýningarinnar hver í sínum flokki. Fv. Grár frá Mýrum 2 og Bjarni Ole Ingason. Kollóttur frá Mýrum og Stefán Páll Böðvarsson. Hvítur hyrndur frá Urriðaá og Dagbjört Diljá Einþórsdóttir.
Efstu hrútar sýningarinnar hver í sínum flokki. Fv. Grár frá Mýrum 2 og Bjarni Ole Ingason. Kollóttur frá Mýrum og Stefán Páll Böðvarsson. Hvítur hyrndur frá Urriðaá og Dagbjört Diljá Einþórsdóttir.

Þrátt fyrir áföll í sauðfjárbúskap og slaka afkomu sauðfjárbænda undanfarin ár virðist áhugi á sauðfjárrækt í engu hafa dalað. Haustið er uppskerutími þeirra sem unna sauðkindinni þegar árangur kynbótastarfsins birtist skriflega á vigtarnótum sláturleyfishafa og dómablöðum ráðunautanna, en ekki síður við skoðun og áhorf á lagðprúð og læramikil líflömb.

Í Húnaþingi vestra er sauðfjárrækt undirstöðu atvinnuvegur enda kjöraðstæður í sveitarfélaginu til sauðfjárræktar og ættliðaskipti hafa tekist vel með áberandi mörgum ungum bændum í héraðinu.

Miðvikudagskvöldið 20. október 2021 var vel heppnuð lambasýning haldin að bænum Bálkastöðum í Hrútafirði þar sem ráðunautarnir Sigríður Ólafsdóttir og Stella Guðrún Ellertsdóttir röðuðu upp til verðlaunaafhendingar áður stiguðum lömbum.

Mættir voru bændur úr Miðfjarðarhólfi sem nær frá Fitjárdal að austan til botns Hrútafjarðar í vestri. Margt góðra lamba var til álita og átöku og áttu dómarar í töluverðum vandræðum með að skera úr um hvaða lamb væri best.

Keppt var í eftirfarandi flokkum: hyrndir hvítir hrútar, kollóttir hvítir hrútar, mislitir hrútar, skrautgimbrar.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Hyrndir hvítir:

  1. Urriðaá – Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  2. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
  3. Bergsstaðir – Ari Guðmundur Guðmundsson

Kollóttir hvítir:

  1. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
  2. Sandar – Hanife Agnes Mueller-Schoenau
  3. Bálkastaðir 1 – Guðný Kristín Guðnadóttir

Mislitir:

  1. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
  2. Urriðaá – Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
  3. Bergsstaðir – Elín Anna Skúladóttir

Skrautgimbur:

  1. Melar 2 – Jóna Elín Gunnarsdóttir
  2. Melar 2 – Guðveig Fanney Jónasdóttir
  3. Bálkastaðir 1 – Arnfinnur Guðni Ottesen og Bryndís Jóna Ottesen

Besti hrútur sýningarinnar var valinn sigurvegari mislita flokksins og er hann frá Mýrum 2. Virkilega gerðarlegur grár hrútur, holdfylltur frá nösum til dindils, fallegur á velli og almennt góður. Ekki spillti liturinn svo fyrir enda grár litur með fallegri sauðalitum sem finnast.

Fjárræktarfélögin í Hrútafirði og Miðfirði veittu verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti í hverjum flokki og einnig Pakkhúsið á Hvammstanga sem gaf saltsteina til bragðbætis.

Hrútasýningar á við þessa eru góð skemmtun, þar sem þær mega eiga sér stað, og algerlega um að gera að nýta tækifæri sem bjóðast til að koma saman, skoða fallegt fé og hafa gaman.

@Sigríður Ólafsdóttir ráðunautur og Gunnar Rögnvaldsson
Myndir: Gunnar Rögnvaldsson

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir