Húnaþing vestra fundar um kjörskrá
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
21.11.2011
kl. 09.15
Sveitarstjórnarfundur Húnaþings vestra verður haldin í fundarsal Ráðhússins á Hvammstanga í dag, 21. nóvember kl. 10.
Verður þetta 190. fundur samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins. Á dagskrá verður kjörskrá vegna kosningar um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra þann 3. desember nk.
Þess má geta að kjörskráin mun liggja frammi á skrifstofu Húnaþings vestra, almenningi til sýnis, frá og með deginum í dag.
