Húni er kominn út

Fertugasti og fyrsti árgangur Húna er kominn út. Mynd: usvh.is
Fertugasti og fyrsti árgangur Húna er kominn út. Mynd: usvh.is

Húni, ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnavetninga er kominn út og er það 41. árgangur ritsins. Á heimasíðu USVH segir að ritið sé rúmar 200 blaðsíður að lengd og í því má finna frásagnir, viðtöl, ljóð og annan fróðleik sem tengist Húnaþingi vestra. Einnig er minnst látinna íbúa í sveitarfélaginu á árinu 2019 auk ítarlegra frétta úr hinum ýmsu byggðum sveitarfélagsins sem alls sjö fréttaritarar hafa skrásett.

Meðal efnis blaðsins er viðtal við Brynju Bjarnadóttur á Hvammstanga og einnig er fjallað um sjúkrahúsið á Hvammstanga sem átti 100 ára afmæli á árinu.

Veg og vanda að útgáfu Húna hefur sex manna ritnefnd sem unnið hefur óeigingjarnt starf við útgáfuna. Ingi Bjarnason sem hefur verið eins konar ritstjóri undanfarin ár lætur nú af störfum í ritnefndinni og fær hann alúðarþakkir fyrir sitt framlag ásamt öðru ritnefndarfólki. Útgáfan er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra.

Ritið er að berast áskrifendum þessa dagana. Einnig er það til sölu hjá verslun KVH, í Bókasafni Húnaþings vestra á Hvammstanga og í Riishúsi á Borðeyri. Eins er hægt að óska eftir áskrift á netfangið usvh@usvh.is .

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir