Íturvaxin dagskrá framundan í Húnaþingi vestra

Ljós verða tendruð á hinu óbifanlega jólatré á Hvammstanga á morgun líkt og Feykir sagði frá fyrr í vikunni. Tilheyrandi dagskrá fylgir og þá munu gestir sem koma af fjöllunum hafa tilkynnt um komu sína. Á heimasíðu Húnaþings vestra er sagt frá því að mikið er um að vera í sveitarfélaginu nú á aðventu og yfir hátíðirnar eins og sjá má á auglýsingunni sem hér fylgir.

Fólk er hvatt til að láta starfsfólk sveitarfélagsins vita af viðburði sem ekki eru á listanum og þá verður þeim bætt inn í snatri.

„Munum að njóta aðventunnar, eiga góðar stundir saman og taka þátt í öllu því fjölbreytta og skemmtilega sem samfélagið okkar hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningunni..

Fleiri fréttir