Jón Oddur vann A-riðil í Kaffi Króks mótaröðinni sl. þriðjudag

Þórður Ingi og Jón Oddur. MYND:PÍLUKASTFÉLAG SKAGAFJARÐAR.
Þórður Ingi og Jón Oddur. MYND:PÍLUKASTFÉLAG SKAGAFJARÐAR.
Annað mótið í Kaffi Króks mótaröðinni þetta árið fór fram þriðjudaginn 27. febrúar í glæsilegri aðstöðu hjá Pílukastfélagi Skagafjarðar en miklar endurbætur hafa verið gerðar þar sl. vikur. Alls tóku fjórtán félagsmenn þátt í mótinu og keppt var í tveimur riðlum, sjö í hverjum riðli. Í A-riðli vann Jón Oddur Hjálmtýsson og Þórður Ingi Pálmarsson varð í öðru sæti. í B-riðli vann Sylvía Dögg Gunnarsdóttir og Hjörtur Geirmundsson varð í öðru sæti. Hæsta útskot kvöldsins átti Arnar Már Elíasson en það var 115 stig. Þeir sem ekki vita þá eru Þórður Ingi og Sylvía Dögg hjón og hafa stundað þessa íþrótt, ásamt börnum, af kappi í bílskúrnum heima hjá sér og því engir nýgræðingar í sportinu. 
 
Til hamingju með sigurinn Jón Oddur og Sylvía Dögg. Virkilega skemmtilegt kvöld eins og alltaf í skemmunni segir á Facebook-síðu félagsins. 
 
A - deildin
 

B - deildin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir