Kaldavatnsleki í útbænum og heitavatnslaust í Blönduhlíð

Það er nóg að gera í Veitunum þessa stundina, en hitaveita í Blönduhlíð liggur niðri vegna bilunar í dælustöð á Syðstu-Grund. Unnið er að viðgerð.

Þá er fyrirhuguð viðgerð á leka í kalda vatninu á Króknum og mun þurfa að loka fyrir rennsli í útbænum. Lokað verður við Faxatorg, og allt svæðið þar utan við verður vatnslaust að Skagfirðingabraut og Freyjugötu undanskildum.

Lokunin hefst kl. 13 og óljóst er hvenær viðgerð lýkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir