Kynningarfundur vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Miðhálendi Íslands. Mynd: http://www.samband.is/
Miðhálendi Íslands. Mynd: http://www.samband.is/

Mánudaginn 20. ágúst, kl. 17:00-18:00 mun þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um þjóðgarð á miðhálendinu kynna störf sín og svara spurningum áhugasamra um verkefnið. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu á Hvammstanga og eru allir velkomnir. 

Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði nýverið þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka, fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins. 

 

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir