Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda þann 18. apríl - röng dagsetning í Sjónhorninu

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra standa fyrir málþingi um stöðu og framtíð smáframleiðenda laugardaginn 18. apríl næstkomandi klukkan 10-15 í Miðgarði í Varmahlíð. Nánari dagskrá málþingsins er inni í fréttinni og skráningarlinkur.  

Rekstrarumhverfi smáframleiðenda er víða íþyngjandi, m.a. fjármálaumhverfið og þungt regluverk, en að sama skapi hefur áhugi neytenda og stórmarkaða á vörum þeirra aukist á undanförnum árum. Neytendur sækjast í auknum mæli eftir vörum smáframleiðenda sem hafa gæði, skýran uppruna, rekjanleika og sjálfbærni að leiðarljósi.

Skráning á málþingið er hér

Dagskrá málþingsins er
 
Setning
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
Kveðja frá atvinnuvegaráðherra
Kristín Sigfúsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi- Atvinnuvegaráðuneytið
Smáframleiðendur – staðan í dag
Oddný Anna Björnsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri SSFM
Af vettvangi smáframleiðanda í kjöti
Skúli Þórðarson, eigandi Sláturhússins Refsstað á Vopnafirði
Af vettvangi smáframleiðanda í lífrænu grænmeti
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, grænmetisbóndi og formaður Lífrænt Ísland
Af vettvangi smáframleiðenda í áfengum drykkjum/bjór
- Fyrirlesari óstaðfestur -
Höfum hlutina í lagi
Egill Þorri Steingrímsson, sviðsstjóri samhæfingar – Matvælastofnun
HÁDEGISHLÉ
Og auðvitað fræðsla
Halldór B. Gunnlaugsson, framkv.stj. – Farskólinn á Norðurlandi vestra
Veitingageirinn og smáframleiðendur
Rafn Svansson, veitingamaður - NORTH veitingastaður á Akureyri
Smásöluverslun og smáframleiðendur
Gréta María Grétarsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Krónunnar og Prís
PALLBORÐ með framsögufólki undir stjórn Hlédísar Sveinsdóttur málþingsstjóra
– spurningar úr sal
Samantekt: Sveinbjörg og Hlédís
Málþingslok

 

Fleiri fréttir