Niceair bætir við flugi til Kaupmannahafnar

Niceair mun bjóða upp á flug til Kaupmannahafnar þrisvar í viku frá og með fyrsta júní.Til þessa hefur félagið flogið tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum, en hyggst nú bæta við ferðum á þriðjudögum einnig í sumar.

„Það hefur sýnt sig að Kaupmannahöfn er afar vinsæll áfangastaður Íslendinga og vaxandi fjöldi notar Kastrup sem tengiflugvöll um alla Evrópu. Frá Kaupmannahöfn er flogið til meira en 200 áfangastaða um allan heim og þetta nýtir nú þegar um þriðjungur farþega okkar. Flogið er á morgnana klukkan 0745 sem gefur góðan tíma til að hugga sig á Kastrup áður en flugið er tekið lengra síðdegis. Hér munar auðvitað mestu um að farþegar okkar eru nú að komast á lokaáfangastað innan eins dags, í stað þess að leggja land undir fót á Íslandi og gista til næsta dags til að taka flugið. Gamli höfuðstaðurinn er síðan ekki síst vinsæll sem frábær helgarferðastaður,“ segir Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála Niceair í tilkynningu félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir