Riða greindist í einni á á Eiðsstöðum í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi

Á heimasíðu Mast segir að þann 9. janúar hafi Matvælastofnun borist tilkynning frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðuveiki. Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr þriggja­­ vetra á frá bænum Eiðsstöðum­­­­­­­ í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi.

Búrekstur á Eiðsstöðum er sameiginlegur með nágrannabænum Guðlaugsstöðum. Heildarfjöldi kinda á bæjunum er um 700­­­ talsins­. Riða greindist á Guðlaugsstöðum síðast árið 1993.

Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað á næstu dögum og féð arfgerðargreint. Í kjölfarið verða teknar ákvarðanir um aðgerðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir