Ríflega 100 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Fram kemur í frétt á vef SSNV að alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur. Alls reyndust 57 umsóknir vera vegna menningar- og samfélagsverkefna en að öðru leyti skiptust þar þannig að tíu umsóknir voru vegna stofn- og rekstrarstyrkja á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.
„Fram undan er yfirferð og mat á umsóknum og undirbúningur úthlutunar úr sjóðnum,“ segir í fréttinni. „Úthlutunarnefnd mun meta umsóknirnar út frá matsblaði og úthlutunarreglum sjóðsins og markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og ráðast styrkveitingar af mati á verkefnum og því fjármagni sem er til ráðstöfunar.
Á liðnum árum hefur stuðningur sjóðsins átt þátt í að koma fjölbreyttum verkefnum á legg og efla atvinnulíf, nýsköpun og menningarstarf á svæðinu. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og stærðargráðu en eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og þróun í landshlutanum.“
SSNV þakkar öllum umsækjendum fyrir umsóknirnar og þann áhuga sem þeir sýna á að skapa ný tækifæri á Norðurlandi vestra en nánar verður greint frá niðurstöðum úthlutunar þegar þær liggja fyrir.
