Skagfirska mótaröðin - úrslit sl. helgi

Annað mótið í Skagfirsku mótaröðinni var haldið laugardaginn 2. mars í Svaðastaðahöllinni á Króknum og var keppt í fjórgangi V2 í 1. flokki, 2. flokki, ungmennaflokki og unglingaflokki. Þá var einnig keppt í fjórgangi V5 í 3. flokki og barnaflokki. Í V2 1. flokki vann Lea Christine Busch á Síríus frá Þúfum en þau hlutu 7,23 í einkunn. Í 2. flokk vann Þóranna Másdóttir á Dalmari frá Dalbæ með 6,63 í einkunn og í ungmennaflokkinn vann Auður Karen Auðbjörnsdóttir á Báru frá Gásum með 6,60 í einkunn. Hjördís Halla Þórarinsdóttir vann svo unglingaflokk á Flipa frá Bergstöðum með 7,13 í einkunn. Í V5 í 3. flokki vann Hrefna Hafsteinsdóttir á Sóldísi frá Hóli og í barnaflokki vann París Anna Hilmisdóttir á Gný frá Sléttu með 6,29 í einkunn. 

Nánari úrslit voru:

Fjórgangur V2 – Fullorðinsflokkur – 1. flokkur - A úrslit
1. Lea Christine Busch Síríus frá Þúfum 7,23
2. Klara Sveinbjörnsdóttir Druna frá Hólum 6,70
3. Guðmundur Ólafsson List frá Sauðárkróki 6,63
4. Valdís Ýr Ólafsdóttir Blæsir frá Hægindi 6,57
5. Elvar Einarsson Þokki frá Kolgerði 6,43
6. Hrefna Rós Lárusdóttir Sónata frá Lyngási 6,40

Fjórgangur V2 – Fullorðinsflokkur – 2. flokkur - A úrslit
1. Þóranna Másdóttir Dalmar frá Dalbæ 6,63
2. Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga 6,47
3. Sæmundur Jónsson Arður frá Bessastöðum 6,27
4.-5. Svanur Berg Jóhannsson Stormur frá Feti 6,17
4.-5. Guðný R. Vésteinsdóttir Haukur frá Hofsstaðaseli 6,17
6. Fjóla Viktorsdóttir Prins frá Syðra-Skörðugili 5,93

Fjórgangur V2 – Ungmennaflokkur - A úrslit
1. Auður Karen Auðbjörnsdóttir Bára frá Gásum 6,60
2. Bil Guðröðardóttir Hryggur frá Hryggstekk 6,40
3. Ólöf Bára Birgisdóttir Nótt frá Ríp 6,17

Fjórgangur V2 – Unglingaflokkur - A úrslit
1. Hjördís H. Þórarinsdóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 7,13
2. Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir Ronja frá Ríp 3 6,47
3. Fjóla Indíana Sólbergsdóttir Straumur frá Víðinesi 1 6,43
4. Greta Berglind Jakobsdóttir Fluga frá Prestsbæ 6,37
5. Anna Lilja Hákonardóttir Melrós frá Aðalbóli 1 6,13
6. Sandra Björk Hreinsdóttir Sigurvon frá Auðnum 5,93
7. Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir Kolbeinn frá Keldulandi 4,90

Fjórgangur V5 – Fullorðinsflokkur – 3. flokkur - A úrslit
1. Hrefna Hafsteinsdóttir Sóldís frá Hóli 5,83
2.-3. Viktoría Ösp Jóhannesdóttir Fálki frá Helgustöðum 5,38
2.-3. Andreas Wehrle Ísarr frá Syðra-Skörðugili 5,38
4. Jón Gylfi Jónsson Katla frá Bessastöðum 5,25
5. Andreas Wehrle Tómas frá Björnskoti 4,79

Fjórgangur V5 – Barnaflokkur - A úrslit
1. París Anna Hilmisdóttir Gnýr frá Sléttu 6,29
2. Sigrún Sunna Reynisdóttir Mylla frá Hólum 5,83
3. Arna Rakel Hákonardóttir Jóný frá Syðra-Skógarnesi 5,42
4. Anton Fannar Jakobsson Krukka frá Garðakoti 4,25
5. Sigrún S. Eyþórsdóttir Steinríkur frá Gullberastöðum 3,88
6. Grétar Freyr Pétursson Sóldís frá Sauðárkróki 3,38

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir