Söngvarakeppni á sunnudag

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin sunnudaginn 16. janúar næstkomandi klukkan 14:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga. Hljómsveitin Wildberry ber heiðurinn af undirbúningi nemenda og tónlistarflutningi á keppninni.

Aðgangseyrir er 1.500 krónur og verður ekki hægt að greiða með kortum.

Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda.

Fleiri fréttir