Sumarhátíðin Bjartar nætur í Hamarsbúð

Sumarhátíðin Bjartar nætur verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 23. júní og hefst kl.19:00. „Þar bjóða Húsfreyjurnar gestum að sérstæðu Fjöruhlaðborði sem svignar undan fjölbreyttum og sjaldséðum mat,“ segir á Norðanátt.is.

Þar verður bögglauppboð, fjöldasöngur og tónlist í stórtjaldi. Miðaverð er 4.000 kr. fyrir fullorðna og 1.200 kr. fyrir 6-12 ára.

Matseðil Fjöruhlaðborðsins er að finna hér.

Farið verður í gönguferð með leiðsögn þennan sama dag kl. 16. „Farið verður frá Ánastaðastapa að Hamarsbúð, 7 km köng leið sem flestir geta gengið,“ segir loks í tilkynningu.

Fleiri fréttir