Þetta leggst rosalega vel í mig

Þetta leggst rosalega vel í mig og næstu skref hjá okkur verður að setjast niður, klára listann og hella okkur í framhaldinu út í þá baráttu, sem framundan er, segir Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi.

 

Gunnar segir að þau fimm sem hafi hlotið fimm efstu sæti í prófkjörinu ætli öll að taka sæti sín og góður hugur sé í mannskapnum. –Menn vilja bara bretta upp ermar og hella sér út í þetta.

 

Auk Gunnars Braga er Elín Líndal fulltrúi íbúa á Norðurlandi vestra í efstu sætum.

Fleiri fréttir