Þórður Ingi Pálmarsson með verðlaunin sín. Mynd tekin af Facebook-síðu Pílukastfélags Skagafjarðar
Fjórða Kaffi Króks innanfélagsmót Pílukastfélags Skagafjarðar var 7. nóvember og mættu 19 einstaklingar til leiks. Spilað var í fjórum deildum að þessu sinni og var keppnin skemmtileg og spennandi eins og alltaf.
Sigurvegari í efstu deildinni var að þessu sinni Þórður Ingi Pálmarsson. Í annarri deildinni var Júlíus Helgi Bjarnason sigurvegari. Í þriðju deildinni sigraði Einar Gíslason og í fjórðu deildinni sigraði Viktor Kárason. Næsta mót verður 21. nóvember og vonandi verður jafn góð þáttaka þá eins og var nú.
Þátttakendur í fyrstu deildinni

Þátttakendur í annarri deild Þátttakendur í þriðju deild Þátttakendur í fjórðu deild