UMSS sigraði heildarstigakeppni í Þristinum
Þristurinn fór fram á Sauðárkróksvelli sl. miðvikudag en þar kepptu UMSS, USVH og USAH sín á milli. Samkvæmt heimasíðu UMSS voru aðstæður góðar á Króknum til frjálsíþróttaiðkunar þó að sólin hafi ekki látið sjá sig.
Alls tóku um 70 keppendur þátt í mótinu og fóru úrslitin á þann veg að UMSS vann heildarstigakeppnina en USAH var í öðru sæti og USVH í því þriðja.
Stigakeppni aldursflokkana var þannig að UMSS vann í flokki pilta 11 ára og yngri, stúlkna 12-13 ára og stúlkur 14-15 ára. USAH vann síðan stigakeppni stúlkna 9 ára og yngri , pilta 12-13 ára og pilta 14-15 ára.