Útgjöld til mat- og drykkjarvörukaupa hlutfallslega lægst í hálaunalöndum
Íslendingar verja 14,6% af útgjöldum heimilanna (án eigin húsnæðis) til matar- og drykkjarvörukaupa. Hlutfallið er lægra en í mörgum okkar nágrannalöndum og sem fyrr eru það gömlu ríki Austur-Evrópu sem eyða hlutfallslega mest af sínum ráðstöfunartekjum í mat og drykkjarvörur.
Það er Hagstofa Evrópu sem safnar upplýsingum um verðlag og útgjöld neytenda í löndum Evrópska efnahagssvæðisins auk fleiri landa sem stefna á ESB-aðild, s.s. Króatíu og Tyrklands.
Þetta kemur fram á Bóndi.is