Vetur næsta sólahringinn
Hún er vetrarleg spáin fyrir næsta sólahringinn en hún gerir ráð fyrir norðaustan 8-13 m/s og dálitlum élum einkum úti við sjóinn, en 13-18 og éljagangur síðdegis.
Norðaustan 13-18 og slydduél eða skúrir á morgun. Frost 0 til 5 stig, en hlýnar smám saman og víða frostlaust á morgun.
Hvað færð á vegum varðar þá er hálka og hálkublettur víðast hvar í Skagafirði og Austur Húnavatnssýslu en í Vestur Húnavatnssýslu er víðast hvar greiðfært.