Vinnuhelgi á Grettisbóli
Í dag er boðað til vinnufundar á Grettisbóli en þar þarf að taka til hendinni fyrir sumarið, svo þar geti blómstrað markaður, leikvangur og ýmis uppbyggileg og skemmtileg starfsemi í sumar.
Allir þeir sem vilja leggja málinu lið, gefa vinnu sína við að snyrta umhverfið og mála og lagfæra húsið eru velkomnir í dag klukkan 18 – 22. Haldið verður áfram á morgun eftir því sem þurfa þykir.
Það eru Undirbúningsnefndin, Grettistak ses, Ferðamálafélag Vestur-Húnavatnssýslu, Laugarbakkinn – sagnasetur sem standa að vinnufundinum.