V-Húnavatnssýsla

Nýr samningur um greiningu og endurhæfingu vegna vefjagigtar

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Þraut ehf. hafa gert með sér nýjan samning um þverfaglega greiningu og endurhæfingu fyrir einstaklinga með vefjagigt og tengda sjúkdóma og hefur hann verið staðfestur af heilbrigðisráðherra. Á heimasíðu SÍ segir að samningurinn sé til eins árs og gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins á fjárlögum. Samningurinn byggir í grunninn á fyrri samningi milli SÍ og Þrautar, en Þraut hefur frá árinu 2011 veitt einstaklingum með vefjagigt þverfaglega heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga við SÍ.
Meira

Spjallað um landbúnað á Facebooksíðu SSNV

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra efna til spjalls um landbúnað á Facebooksíðu sinni dagana 1. – 5. febrúar næstkomandi. Samtökin fá til liðs við sig nokkra viðmælendur sem hafa ýmislegt til málanna að leggja hvað landbúnað varðar og eiga við þá hálftíma spjall um landbúnaðarmálin sem eru íbúum Norðurlands vestra svo mikilvæ
Meira

Málaralistin heillar alltaf

Dóra Sigurðardóttir, handverkskona og listamaður sem býr ásamt manni sínum í Vatnsdalshólum í Vatnsdal sagði lesendum Feykis frá því sem hún hefur helst verið að sýsla við í höndunum í 38. tbl. Feykis árið 21018. Dóra hefur lagt stund á margs konar handverk um dagana en þó er það málaralistin sem er henni hugleiknust og m.a. selur hún listilega skreytt kerti sem hún hannar og málar munstrin á.
Meira

Vinsæll kúrekapottréttur og eplakaka með marengs

Matgæðingar 38. tölublaðs Feykis árið 2018 voru Ósk Jóhannesdóttir og Guðmann Valdimarsson, búsett á Blönduósi en Guðmann er Blönduósingur að upplagi og Ósk er fædd og uppalin á Akureyri. Guðmann vinnur hjá Rafmagsverkstæðinu Átak en Ósk er heimavinnandi ásamt því að vinna með fötluðum. Þau eiga tvö börn, Valdimar Loga og Stefaníu Björgu.
Meira

Þrautseigja, þol og hugvit

Ég er fæddur og uppalinn á Stað, Súgandafirði. Barnæskan á Suðureyri var yndisleg, ég get ekki ímyndað mér betri stað til að alast upp á. Við notuðum allt þorpið sem leikvöll, hvort sem það var í byssó, fallin spýta eða að reyna að svindla pening af þorpsbúum með því að mála steina gulllitaða og selja þá sem alvöru gull. Svo varð ég eldri, byrjaði að vinna í fiski og hlusta á karlana tala um pólitík. Það var alltaf neikvætt; „Hvað eru þessi börn inn á Alþingi eiginlega að hugsa?“ þá byrjaði ég að taka eftir því að það var ákveðið vonleysi yfir fullorðna fólkinu. Þegar bankahrunið kom og fréttirnar sögðu: „Nú er komin kreppa“ þá heyri ég: „Kreppan var löngu komin vestur, enda erum við alltaf á undan í tískunni“.
Meira

Val á framboðslista hjá Framsóknarflokki

Kjördæmasambönd Framsóknarflokks hafa ákveðið aðferð við val á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Í fjórum kjördæmum geta allir þeir sem skráðir voru í flokkinn 30 dögum fyrir valdag tekið þátt í valinu. Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi verða með lokuð prófkjör en póstkosning fer fram í Norðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Í Reykjavík verður uppstilling og framboðslistar afgreiddir á aukakjördæmaþingi. 
Meira

Bækur eins og eðalvín og sérvitringar, batna með aldrinum

Það var Fljótakonan, Arnþrúður Heimisdóttir, túristabóndi og hrossaræktandi með öllu sem því tilheyrir, sem svarðir spurningum Bók-haldsins í 18. tölublaði Feykis 2020. Hún hefur fjölbreyttan bókmenntasmekk þó sögur af mannraunum og svaðilförum heilli hana einna mest. Þar sem eldri bækur höfða mikið til Arnþrúðar kemur það sér vel að þurfa ekki að fara langt til að komast í fornbókaverslun en ein slík er einmitt rekin á næsta bæ, hjá Erni Þórarinssyni á Ökrum, og er hún að sjálfsögðu uppáhalds bókabúð Arnþrúðar.
Meira

Góðir þorskhnakkar og marengsterta

Uppskriftir 37. tölublaðs 2018 komu úr Skagafirðinum en það voru hjónin Hulda Björg Jónsdóttir og Konráð Leó Jóhannsson sem gáfu okkur þær. Þau búa á Sauðárkróki og starfa bæði hjá FISK Seafood, Konráð sem viðhaldsmaður og Hulda er starfsmanna- og gæðastjóri. Þau telja því vel við hæfi að gefa uppskrift af ljúffengum þorskhnökkum sem þau segja að vel sé hægt að nota spari líka og ekki saki að fá sér marengstertusneið í eftirrétt.
Meira

Til veiga, til veiga vér vekjum sérhvern mann - kominn er illviðrakonungurinn þorri enn.

Í dag er bóndadagur eða fyrsti dagur þorra samkvæmt gamla íslenska tímatalinu og er hann þar fjórði mánuður vetrar, næstur á eftir mörsugi. Þorri hefst ætíð á föstudegi á tímabilinu 19.-25. janúar og lýkur á laugardegi fjórum vikum síðar en næsti mánuður, góan, heilsar á sunnudegi.
Meira

Kirkjan á Sauðárkróki lýst appelsínugul í tilefni vitundarvakningar Krafts

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hóf vitundarvakningu og fjáröflunarherferð í gær sem stendur til 4. febrúar nk. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á hversu marga krabbamein hefur áhrif á, selja húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess sem og afla styrkja fyrir félagið.
Meira