6. október kl. 17:00-20:00Hvað er að gerastSauðárkrókur
6okt
Farskólinn kynnir námskeiðið - Endurhönnun: ,,gefðu gömlum textíl nýtt líf."
Á námskeiðinu lærum við t.d. að gera tösku og svo annað verkefni að eigin vali. Markmið námskeiðsins er að sýna hvernig við getum nýtt fatnað og textíl, breytt og bætt í nýjar flíkur og bætt okkar eigin fatastíl. Hver þátttakandi kemur með flíkur úr sínum eigin fataskáp eða fer í endurvinnslu, hver og einn vinnur svo á sínum hraða með þær breytingar sem viðkomandi óskar. Þau sem eiga saumvélar eru hvött til að koma með þær, annars verða nokkrar saumavélar til staðar fyrir þá sem ekki eiga vél.
Leiðbeinendur : Karítas S. Björnsdóttir og Ásta Búadóttir
Námskeiðið er kennt 6. 9. og 13. okt. frá 17:00 til 20:00.
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur kynnt hugmyndir um róttækar breytingar á raforkulögum. Samkvæmt þeim yrði ríkinu og fyrirtækjum þess veittar auknar heimildir til að hraða innviðaframkvæmdum og „ryðja hindrunum úr vegi“ sem taldar eru hamla framgangi orkuflutnings. Þessi grein er ekki skrifuð í þeim tilgangi að gera lítið úr mikilvægi þess að efla raforkuflutningskerfið.
Þegar rætt er um að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið er iðulega látið líta út sem hefja eigi samtal frá grunni. Mikilvægt er að muna að fyrri viðræður stóðu í heilt kjörtímabil og því verður ekki litið fram hjá þeim grunni sem þá var lagður.
Þegar sveitarfélög ráðast í stór og fjárfrek verkefni sem fyrirséð er að muni hafa áhrif á fjárhag til lengri tíma, teljum við afar mikilvægt að það sé gert í skýru og óumdeilanlegu umboði íbúa. Af þeirri ástæðu lögðu fulltrúar Byggðalistans fram tillögu um að efna til íbúakosningar um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. Tillagan var tekin fyrir á fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 25. febrúar síðastliðinn, en felld með fimm atkvæðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Helgi Sæmundur Guðmundsson (Úlfur Úlfur), fæddur 1987, búsettur á Rauðarárstígnum í Reykjavík, segist hafa eytt bestu árum ævi sinnar í Jöklatúni og Eyrartúni á Sauðárkróki. Helgi segist ekki vera sérstaklega góður á neitt hljóðfæri en spilar á gítar, píanó, bassa, ukulele, mandolin, tölvur og syngja smá.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.