Farskólann þarf vart að kynna fyrir lesendum Feykis, en kannski vita færri að skólinn heldur úti öflugu námskeiðahaldi fyrir fatlað fólk á öllu Norðurlandi vestra. Unnið er í nánu og góðu samstarfi við velferðarsvið sveitarfélganna og við Fjölmennt, símenntunarmiðstöð í Reykjavík, sem sérhæfir sig í þjónustu við fatlað fólk.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur kynnt hugmyndir um róttækar breytingar á raforkulögum. Samkvæmt þeim yrði ríkinu og fyrirtækjum þess veittar auknar heimildir til að hraða innviðaframkvæmdum og „ryðja hindrunum úr vegi“ sem taldar eru hamla framgangi orkuflutnings. Þessi grein er ekki skrifuð í þeim tilgangi að gera lítið úr mikilvægi þess að efla raforkuflutningskerfið.
Þegar rætt er um að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið er iðulega látið líta út sem hefja eigi samtal frá grunni. Mikilvægt er að muna að fyrri viðræður stóðu í heilt kjörtímabil og því verður ekki litið fram hjá þeim grunni sem þá var lagður.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Helgu Rós Indriðadóttur frá Hvíteyrum í hinum aldna Lýtingsstaðahreppi ættu nú flestir tónlistarunnendur að kannast við. Helga Rós, sem er sprenglærð söngkona, er fædd 1969, dóttir Rósu og Indriða á Hvíteyrum, býli sem stendur undir Mælifellshnjúknum fagra. Hún kennir söng á eigin vegum og er með barnakór í Tónadansi, nýstofnaðri listasmiðju í Skagafirði. Hún stjórnar tveimur kórum; Skagfirska kammerkórnum og kvennakórnum Sóldísi.. Hljóðfæri Helgu Rósar eru röddin og píanóið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.