7. október kl. 17:00-18:30Hvað er að gerastVefnámskeið
7okt
Farskólinn kynnir námskeiðið - Kryddjurtir innanhús, ræktun og notkun kryddjurta að vetri til
Langar þig að rækta ferskar kryddjurtir heima, jafnvel í myrkasta skammdeginu? Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú að velja hentugar jurtir fyrir vetrarrækt með aðstoð lýsingar inni. Að búa til þitt eigið ræktunnarrými með lýsingu. Hvernig þú getur nýtt uppskeruna í eldamennsku og te til að drekka í skammdeginu. Veitt eru ræktunnarráð og farið yfir hvað gæti farið úrskeiðis. Vertu með! Gerðu eldhúsið að gróðurhúsi.
Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur.
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Talsverður vöxtur er í ferðaþjónustu á Norðurlandi, einkum í vetrarferðaþjónustu, og umtalsverðar fjárfestingar yfirstandandi eða í bígerð á svæðinu. Komufarþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði um 9,5% á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri, þá eru vísbendingar um að erlendir ferðamenn sem heimsækja Norðurland leiti sérstaklega í annars konar afþreyingu en ferðamenn sem koma um Keflavíkurflugvöll. Fjallað var um stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlandi á ráðstefnunni „Segjum sögur af fjárfestingum“ sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í vikunni.
Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í heimsókn í aðsetur sjúkraþjálfunar og endurhæfingar HSN á Sauðárkróki þann 21. maí síðastliðinn. Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu. Gjöfin í ár eru þrjú þrekhjól, hugsuð fyrir alla þá fjölmörgu einstaklinga sem njóta þjálfunar og endurhæfingar hjá stofnuninni.
Erlend fjárfestingarfyrirtæki sækja stíft að fá að reisa Vindmyllugarða á Íslandi. Þarna eru meðal annars á ferðinni erlendir einkafjárfestar sem vilja mjólka verðmæti og arð út úr raforkuframleiðslu á Íslandi og umbreyta þar með íslenskri náttúru með alvarlegum afleiðingum. Fram hefur komið að sótt hefur verið um að reisa vindmyllugarða á yfir 40 stöðum á landinu.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-lystin heimsækir nú stórsöngkonuna og Hofsósinginn Alexöndru Chernyshovu (1979) sem síðustu árin hefur búið í Reykjanesbæ. Alexandra, sem er fædd og uppalin í Kænugarði í Úkraínu, fluttist á Hofsós árið 2005 ásamt eiginmanni sínum, Jóni Hilmarssyni, skólastjóra og ljósmyndara, og börnum þeirra. Þar bjuggu þau í sjö ár og var Alexandra á þeim tíma stóreflis menningarsprauta inn í skagfirskt samfélag, stofnaði meðal annars söngskóla og setti upp óperusýningar og tónleika.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.