Mark Watson dagurinn

18. júlí kl. 15:30-17:30 Hvað er að gerast Byggðasafn Skagfirðinga
18 júl
Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ þann 18. júlí!
 
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Sögusetur íslenska fjárhundsins og við hvetjum fólk til að sækja það heim í tilefni dagsins.
 
Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist. Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".
 
  • Í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum.
  • Á kaffihúsi safnsins í Áshúsi verður góðgæti fyrir menn og hunda í boði.
  • Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.
Verið velkomin í Glaumbæ! 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.