Uppleið – nám byggt á hugrænni atferlismeðferð

2. október kl. 18:00-20:00 Hvað er að gerast Vefnámskeið -zoom
2 okt

Farskólinn kynnir námskeiðið - Uppleið – nám byggt á hugrænni atferlismeðferð

Námið er 40 klst., byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.

Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir. Námið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.

Helstu námsþættir/umfjöllunarefni:

  • Þunglyndi og kvíði.
  • Markmið.
  • Breytt hugsun – bætt líðan.
  • Sjálfsmat og sjálfsefling.
  • Bakslagsvarnir.

Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur.

Hvar og hvenær: Hefst 2. október og haldið þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 18:00-20:00. Kennslan fer fram á netinu í gegnum Zoom.

Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.

Verð: 55.000.kr*

Skráning er hér

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.