Falleg nýárstónleikadagskrá í boði listrænna hjóna
Á nýju ári fá landsmenn að njóta vandaðrar kvikmynd–tónleikadagskrár þar sem íslenskar kirkjur og náttúra eru í aðalhlutverki. Verkefnið ber heitið Nýárstónleikar úr kirkjum og náttúru Suðurlands og er unnið af listrænu hjónunum Alexöndru Chernyshovu, sópran og tónskáldi, og Jóni Rúnari Hilmarssyni, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmanni, í samstarfi við menningar- og fræðslufélagið DreamVoices ehf.
Um er að ræða 30 mínútna kvikmynd–tónleikadagskrá þar sem tónlistarflutningur Alexöndru fléttast saman við fallegar myndir af kirkjum víða um land og íslenskri náttúru. Markmið verkefnisins er að gera klassíska tónlist aðgengilega breiðum hópi fólks og um leið varpa ljósi á kirkjur landsins sem mikilvægan hluta menningararfs þjóðarinnar.
Upptökur fóru fram í fjölmörgum kirkjum, meðal annars í Þingvallakirkju, Skálholtskirkju, Hallgrímskirkju, auk fleiri staða. Á efnisskrá eru klassísk verk motet “Exsultate Jubilate” eftir tónskáld Amadeus Mozart, Charles Gounod og Alexöndru sjálfu.
Alexandra er listrænn verkefnisstjóri og sér um tónlistarflutning, en Jón Rúnar annast kvikmyndatöku og myndbandsvinnslu og er framkvæmdastjóri verkefnisins. Þau hafa unnið saman að fjölmörgum metnaðarfullum verkefnum síðustu tvo áratugi, þar á meðal Magical Sky Iceland kvikmynd og frumsamin sinfónietta, Nýárstónleikum úr kirkjum Suðurnesja og í Hljómahölli, sem hlutu afar góðar viðtökur áhorfenda.
Verkefnið fekk styrk úr Uppbyggingasjóði Suðurlands og einnig Kirkjusjóði Þjóðkirkjunnar.
1.janúar kl.20:00 2026 tónlistardagskrá dagskrá verður frumsýnd á netinu á heimasíðu www.alexandrachernsyhova.com og YouTube síðu Alexöndru og verður öllum opin.
/Fréttatilkynning
Fleiri fréttir
-
Búið að velja Gettu betur æfingahóp FNV
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 04.09.2026 kl. 14.36 oli@feykir.isTólf nemendur þreyttu nýverið úrtökupróf fyrir Gettu betur lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þau sem komust áfram og munu æfa saman eru Lára Sigurðardóttir, Snædís Katrín Konráðsdóttir, Ingimar Eyberg Ingólfsson og Emma Katrín Helgadóttir sem eru öll Króksarar og síðan Hafþór Ingi Brynjólfsson frá Fagranesi og Halldór Stefánsson frá Þverá.Meira -
Vegagerðin boðar til fundar vegna Vatnsnesvegar
Á heimasíðu Húnaþings vestra er vakin athygli á íbúafundi sem Vegagerðin boðar til á Hótel Hvítserki þann 10. september nk. kl. 17:00. Fundarefnið er fyrirhugaðar framkvæmdir á Vatnsnesi, frá Skarði í vestri að Hringvegi í austri.Meira -
Nautakjötspottréttur og smákökur | Matgæðingur Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 04.09.2026 kl. 10.59 siggag@nyprent.isMatgæðingurinn í tbl. 14 á þessu ári var Stella Hrönn Jóhannsdóttir og ólst hún upp í Keflavík í Hegranesi. Eins og fleiri fluttist hún úr firðinum eftir framhaldsskóla og settist að sunnan heiða og hefur búið í Hveragerði í rúm 20 ár.Meira -
Treyjudagurinn er í dag og við erum öll í sama liði!
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 04.09.2026 kl. 09.35 oli@feykir.isÁ Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil en þetta mun vera í fyrsta sinn sem haldið er upp á daginn á Íslandi.Meira -
Eldur, járn, náttúra og vatn | Vel heppnað eldsmíðanámskeið fyrir konur í Skagafirði
Í sumar var haldið sérstakt eldsmíðanámskeið við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki fyrir konur 21 árs og eldri. Námskeiðið bar heitið Eldsmíðanámskeið eða Ironwork, Earth and Water og var unnið innan Erasmus+ rammans. Markmiðið var að sameina verklega kennslu í Eldsmíði við upplifun af íslenskri náttúru, menningu og þeirri sérstöðu sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða.Meira
