10 milljóna styrkur til endurbóta á Gúttó

Forsætisráðuneytið hefur ákveðið að veita styrk að upphæð tíu milljónum króna í endurbætur á hinu sögufræga húsi Góðtemplarahúsi á Sauðárkróki, sem í daglegu tali er kallað Gúttó.

Þetta kom fram í bréfi sem lagt var fram til kynningar á síðasta fundi byggðaráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar sem haldinn var 16. janúar sl. Skal styrkurinn nýttur til að skipta um glugga og klæðningu að utanverðu. Á fundinum fagnaði byggðarráð styrkveitingunni, sem veitt er í endurbætur á þessu sögufræga húsi.

Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra lagði ennfremur fram svohljóðandi bókun:
„Það er gleðilegt að sjá að forsætisráðherra hafi tekið upp merki fyrrverandi borgarstjóra Ólafs F. Magnússonar með því að standa vörð um og hvetja til endurbóta á gömlum húsum sem hafa menningarsögulegt gildi.“

Fleiri fréttir