100 þúsund krónur í jólaaðstoð

Sr. Sigríður tekur við peningum af Þuríði Þórarinsdóttur kvenfélagskonu. Mynd: Af fésbókarsíðu sr. Sigríðar.
Sr. Sigríður tekur við peningum af Þuríði Þórarinsdóttur kvenfélagskonu. Mynd: Af fésbókarsíðu sr. Sigríðar.

Í gær var fyrsti sunnudagur í aðventu og af því tilefni voru haldnar hátíðarmessur víða í kirkjum landsins. Á Sauðárkróki var messað klukkan tvö og eftir athöfn var öllum boðið í kaffi og jólaaðstoðinni færður styrkur.

Það var Kvenfélag Skarðshrepps sem bauð kirkjugestum til glæsilegrar kaffiveislu eftir hátíðarmessuna í Sauðárkrókskirkju á fyrsta sunnudegi í aðventu. Afhentu kvenfélagskonur sr. Sigríði Gunnarsdóttur 100 þúsund krónur sem þær gefa til jólaaðstoðar fyrir efnalitlar fjölskyldur. 

Fleiri fréttir